laugardagur, janúar 29, 2011

Létt æfing á Eskifirði

Front squat:
20kg x 10
40kg x 5
60kg x 5
80kg x 5
Dedd:
60kg x 5
100kg x 5
140kg x 2 x 3

Frekar slöpp og andlaus æfing. Var með verki í öxlum og olnbogum eftir búkkaæfingu fyrir 2 dögum. Fann líka aðeins fyrir því að hafa lagt pabba í sjómann í morgun. Hnén voru líka slöpp eins og þau hafa verið undanfarið, fann extra fyrir eftir beygjurnar á þriðjudaginn sl.

Og var þar fyrir utan var ég illa étinn og illa sofinn þannig að ég mætti bara til að mæta. Mæting er bæting, þannig að ég lagði þessa bara inn í bætingabankann.

2 Comments:

Blogger Gunz said...

Sleppa því að fara í sjómann, annars helv. fínt æfingakerfi. Annars langar mig oft í sjómann með vinstri. Aðeins þrír unnið mig á 30 árum, ma Magnús Ver og Baldvin. Þori samt ekki í sjómann..nema ég fái pening. Kannski orðinn og gamall... :)

1/30/2011 01:48:00 e.h.  
Blogger Fjölnir said...

Já, enda hef ég ekki farið í sjómann síðan eftir Íslandsmeistaramótið í páver 2009, forðast hann almennt út af meiðslahættu.

Æfingakerfið er svona í grunninn:
Þri: Hnébeygjur og aukaæfingar
Fim: Þungur bekkur, búkki (og sloppur ef hann er á dagskrá) léttar bakaukaæfingar
Lau: Front beygjur og dedd
Sun: Axlapressa og bakæfingar

En svo breytast hlutirnir aðeins og skolast til líka.

1/30/2011 11:48:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home