fimmtudagur, nóvember 22, 2007

Miðvikudagur

Hnébeygja: 20kg x 2 x 10, 40kg x 2 x 10, 60kg x 8, 70kg x 10, 80kg x 10

Ég var alveg hrikalega seinn fyrir og þurfti að sækja Berglindi eftir æfingu og hafði því bara 25mínútur til að gera eitthvað. Ekki glæsilegt, en þetta er allavega eitthvað. Ég þarf að fara að herða aðeins á mér. Það er ekki alveg nógu góður andi í því að mæta kl.20 á æfingar, það virkar einhvern veginn ekki, maður er annað hvort óétinn eða nýétinn... kl.17 er akkúrat passlegt, ég sé til hvort ég geti hliðrað til aftur og farið að mæta þá. Ef ekki, þá bara ríf ég mig upp í æfingaanda á þessum tímum... kemur ekkert annað til greina.

Það jákvæða er að ég beygði 80kg án tilfinnanlegra verkja í bakinu, þannig að lappirnar og bakið eru á einhverri uppleið. Kírópraktorstímarnir að skila sér...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home