miðvikudagur, október 10, 2007

Síðasta vika

Þessi tími fór að mestu í próflestur, en þó náði ég hinum fræga KRAFT fundi auk nokkurra skunkaæfinga.

Ég testaði bakið aðeins á mánudaginn, tók 10sett 2reps með 100kg í beygju sem gekk mjög vel. Síðan stiffdeddaði ég 80kg 3sett 8reps... fyrstu tvö settin gengu fínt, en ég fékk einhvern sting í seinasta settinu og þar með var þetta búið.

Ég þarf greinilega bara að bíða eftir kírópraktornum með að laga þetta, en reyni að hjálpa til sjálfur með léttum æfingum og teygjum.

2 Comments:

Blogger jhaukur (kjwise) said...

Sæll Fjölli, líkt og þú veist þá hef ég nú verið að slást við öxlina á mér eftir tilverutilraunina ógurlegu þarna á klakanum.

Ég hef verið að vinna með ákveðna kenningu hérna í DK með bakið og það hefur gengið vel eftir.

Mest distal hreyfanlegu liðirnir, ef þeir eru veikir, sérstaklega í sambandi við "kjarnann" geta leitt til heimskulegra move-ment patterna. S.b.r sagan um baseball gaurinn sem var skakkur og ónýtur í öxlinni en lagaðist við að losna við inngróna nögl í tánni.

Svo ég hef verið að nota tæki hér í DK til að þjálfa á mér hálsinn og ég er farinn að taka kálfa aftur sérstaklega. Hljómar kannski hýrt, en ég er farinn að geta beitt mér mun betur en ég gat áður. Þú ættir að tjékka á þessu, Ian king segir nú t.a.m að squatt og dead þjálfi kálfana í raun ekkert upp, en ef maður getur ekki læst vel í hælinn þá er maður óstöðugur í þessum greinum þegar einhverjar þyngdir eru komnar á stöngina.

My 2 cents í þessu, en kírópraktor er auðvitað nauðsynlegur andskoti líka.

10/10/2007 10:43:00 e.h.  
Blogger Fjölnir said...

Já, veistu, kannski maður hendi þessum aukaæfingum inn. Það skaðar ekkert að taka 2-3 sett aukalega seinast á æfingunni.

10/11/2007 10:14:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home