þriðjudagur, september 18, 2007

Könnun!

Jæja, mætti í Silfursport vel étinn og vel stemmdur. Var búinn að hafa ákveðna tölu í huga alla undanfarna viku í sambandi við bekkinn í sloppnum og var frekar jákvæður á að það næðist.

Bekkpressa: 20kg x 30, 60kg x 10, 100kg x 5, 80kg x 10

Eftir það skrapp ég í sloppinn og græjaði hann þannig að hann væri í þrengra lagi.

Bekkur í slopp: 120kg (komst ekki niður), 140kg (komst ekki niður), 150kg x 0, 150kg x 1 og svo talan sem ég hafði í huga 160kg x 1!!! PR!

Svona á þetta að vera! Æfingar planaðar miðað við topp sem gekk eftir!

Ég ákvað að vera ekkert að sprikla eftir þetta heldur segja það bara gott og halda heim á leið sáttur með góða bætingu!

(Það styttist óneitanlega í tvistinn!)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home