Síðasta vikan fyrir mót og mótið
Mánudagur
Léttar beygjur upp í 150kg, vafði mig síðustu 2-3 settin
Þriðjudagur
Léttur bekkur upp í 80kg nokkur sett
Hina dagana fram að móti reyndi ég að teygja og fara í bað til að liðka mig til. Ég var nefnilega alveg að drepast í bakinu og var hreinlega ekkert viss um hvort ég næði byrjunarþyngdum upp. Allavega ekki í deddinu.
Laugardagur
Lagði af stað uppúr kl.10 til að smala genginu með mér og svo ókum við af stað upp á Skaga. Við komum rétt fyrir tólf, og ég vigtaðist 97,7kg. Svo skoðaði Bjarki útbúnaðinn hjá mér og var fastur í dómarastörfum á staðnum frá því. Við hinir fórum hins vegar og fengum okkur verstu hugsanlegu hamborgara á Hróa Hetti á Akranesi. Ég vona að allir sem lesa þetta muni forðast þann stað eins og heitan eldinn í framtíðinni. Þjónustan léleg, hamborgarinn kom kaldur á borðið... þetta leit ekki glæsilega út og var hreint ekki til þess fallið að efla andann hjá manni.

Hnébeygjur: 20kg x 10, 50kg x 5, 80kg x 3, 120kg x 3, (í brókina) 140kg, (vafningar) 150kg, 160kg
Keppnisbeygjur: 170kg, 190kg, 200kg Allt saman 3 hvít ljós! Eitthvað smá inni ennþá sem ég tek út þegar ég verð betri í að halda upphafs og lokastöðunni.
Bekkpressa: 20kg x 10, 50kg x 8, 90kg x 3, (í sloppinn) 100kg, 110kg Sömu vandræði og venjulega í upphitun við að komast niður til að snerta, en ég vissi að þegar þyngd væri komin á stöngina yrði það ekkert mál.
Keppnisbekkur: 120kg, 130kg, 135kg Allt saman 3 hvít ljós! Bekkurinn hækkar um leið og ég vinn meira í búkkapressunum. Kemur allt hægt og sígandi.

Dedd: Beint í brókina 120kg x 3, 150kg x 1
Keppnisdedd: 170kg, 185kg, 200kg Hafði tvö fyrstu deddin, en þriðja bara rétt bifaðist og vildi ekki upp. 520kg total staðreynd.
Ég kláraði verklega dómaraprófið eftir þetta, og fyrst Helgi og Hörður voru ánægðir með mig, þá var ég ánægður.

1 Comments:
Gengur betur næst! Ég hefði viljað vera þarna til aðstoðar, en fékk ekki hjálparmann með strákinn, eins og ég fékk daginn eftir. Það kemur mót eftir þetta mót og næsta keppnistímabil verður þitt, þegar þú rúllar upp þessum lágmörkum....kveðja gunz
Skrifa ummæli
<< Home