föstudagur, febrúar 02, 2007

ME Upper

Bekkur(baugfingur á hringjum): 20kgx10, 40kgx10, 60kgx10, 70kgx10, 80kgx10, 90kgx3, 100kgx6settx1reps
Bekkur í bol: 100kgx6x1
Face pulls: 15x2x15, 25x2x8
Armbeygjur: 3x10, 5 (drapst alveg enda stutt hvíld á milli setta)
Db rows: 32,5kgx3x8

Ég var kominn á fremsta hlunn með að útvega mér annan bol til að lyfta í en ákvað að taka METAL bolinn með á æfingu enn einu sinni. Þegar ég kom upp í Silfursport var Alfreð Björnsson fyrrum formaður KRAFT þar á sinni fyrstu æfingu í tvo mánuði. Hann stóð bara í frísku pumpi til að koma öxlinni í gang eftir axlaruppskurð á síðasta ári.

Ég bað hann að aðstoða mig við að komast í, og viti menn... það hafðist bara nokkuð vel. Hann dæmdi bolinn meira að segja bara nokkuð víðan, þannig að ég þarf ekki að hafa frekari áhyggjur af honum.

Það er víst ekki alveg sama hvort maður er Jón eða dr.Jón þegar verið er að troða manni í bolinn. Svo stóð hann við hjá mér þegar ég pressaði í bolnum, gaf mér ráð og það hjálpaði mér til að ná 100kg næstum alveg niður á bringu (vantaði ca. 10cm). Nokkrar æfingar enn og þá næ ég tækninni almennilega og get fengið eitthvað út úr honum. Ég held að það sé einmitt passlegt ef ca. 120kg snerta í bolnum.

Eftir þetta allt gerði ég svo bara smá aukaæfingar og fór frekar sáttur heim. Þegar ég kom heim tók ég eftir því að ég var með marin för á tricep og brjósti víðsvegar.

Allt eins og það á að vera.

Allt á uppleið.

2 Comments:

Blogger DJHalliB said...

Og hvað eru metin þín í powergreinunum?

2/02/2007 08:50:00 e.h.  
Blogger Fjölnir said...

Á byrjendamótinu í fyrra:

210kg Hnébeygja
125kg Bekkpressa
205kg Réttstöðulyfta
540kg total í -90kg flokki
(550kg lágmark á Íslandsmeistaramótið)

Ég er aðeins þyngri núna, en alltaf að berjast við meiðsli í olnbogum, öxlum og mjóbaki, þannig að ef ég fer mér of hratt er ég úr leik í einhvern tíma.

En þetta kemur allt saman.

2/02/2007 10:22:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home