föstudagur, janúar 12, 2007

ME Upper

Bekkpressa: 20kg x Lots, 40kg x Many, 60kg x 10, 80kg x 5, 100kg x 1


Nú var komið að þætti bekkpressubolsins. Tobbi og Hjörtur hjálpuðu mér eins og þeir gátu við að komast í hann, en allt kom fyrir ekki. Ermarnar vildu ekki alla leið upp að öxlum sama hvað við reyndum. Það hefur vantað ca. 4-7cm uppá. Ég þarf sennilega að tala við sérfróða menn og biðja þá um að kenna mér að komast í helvítið, en þá verður þetta líka rokk og ról ;) For the record, þá fór ég inn hálfur í bolnum, lagðist á bekkinn og reyndi að draga 100kg niður, en gat ekki lækkað það um nema 10cm áður en ég þurfti að pressa upp aftur. Reyndi það þrisvar en það hjálpaði bolnum ekkert að komast ofar á handleggina.

Bekkpressa: 100kg x 1, 110kg x 1, 105kg x 4sett x 1rep
Sitjandi external rotation með olnbogann við hné:
5kg x 3sett x 8reps
Db róður: 70lbs, 33reps vinstri, 20reps hægri (blés eins og hvalur allan tímann, fór sennilega of snemma í settið. Trúi ekki að svona mikill munur sé á bakinu vinstri í hag. Fann líka miklu meira fyrir þessu í latsanum hægra megin en vinstra megin. Þetta var allt eitthvað undarlegt)
Hammer curl með reipi í cable crossover vél: 10plötur x 8
EQI teygja fyrir pecs: 50lbs x 60sec 50lbs x 90sec
Tricep niðurtog í niðurtogsvél: 5plötur x 10, 3plötur x 10

Þá var ég alveg búinn og skutlaðist í gufuna... en helvítis bolurinn skal komast á mig.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mér sýnist á öllu að þetta sloppadæmi þitt sé einfalt:OF ÞRÖNGUR BOLUR...fyrst aðstoðarmenn gátu ekki troðið þér í flíkina þá gengur þetta ekki af viti..of þröngur sloppur eyðileggur allan stíl líka..t.d Verið hefur aldrei farið í sérstaklega þröngt framhaldslíf. En svo geturðu kannski grennt þig í sloppinn..en samt ekki á Herbalife því það er víst farið að hálfkála mönnum...
----------------
Kveðja. Magister

1/14/2007 09:17:00 f.h.  
Blogger Gunz said...

Það á auvitað að banna þessa boli. En sennilega á maður ekki séns í 200 kg plús nema að nota þetta drasl. Svo er það líka sérstök list að klæða menn í þessa sloppa...

1/14/2007 04:08:00 e.h.  
Blogger Fjölnir said...

Við fórum eitthvað klaufalega að þessu, en þetta er auðvitað bölvað að komast ekki nokkuð greiðlega í sloppinn með aðstoð.

Ég spurði sölumann ítrekað hvort þetta slyppi ekki til, en hann fullvissaði mig um að þetta passaði.

Síðast þegar ég vissi voru handleggirnir aðeins aumir 40cm og eru ekki nema 42 í hæsta lagi, sem ætti ekki að þenja sloppinn um of en samt strandar þetta þarna á bicep.

Ég prófa amk einu sinni enn áður en ég ákveð að fá mér nýjan eða reyna að minnka handleggina (sem er auðvitað fáheyrt að menn reyni, en ég neita því ekki að einhverja fitu er hægt að skafa af þeim.)

Sé ykkur félaga vonandi sem fyrst,
kv. Fjölnir

1/14/2007 06:07:00 e.h.  
Blogger Fjölnir said...

Ég komst að því að ég fór skakkt að þessu og var leiðbeint í réttari átt. Reyni aftur á föstudag, en þá verður þetta líka fullreynt.

1/16/2007 07:02:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home