Vikan fyrir jól
Ég fann það eftir síðustu viku að ég var orðinn heldur lurkum laminn. Fór í nudd og fékk staðfestingu á því. Þess vegna ætla ég að taka deload viku núna fyrir jól. Þá reyni ég að gera eitthvað smotterí daglega, aðallega teygja og svo einhverjar armbeygjur og líkamsþyngdaræfingar, allt há reps til að dæla blóði og næringarefnum í vöðvana.
Þetta miðar allt að því að ég verði ferskari í næsta "microcycle" og ráði við þolanlegar þyngdir og geti forðast meiðsli þokkalega, því ekki lyftir maður mikið meiddur.
Svo verður aftur tekið þungt á því á mánudagsæfingu 25.des.
Þetta miðar allt að því að ég verði ferskari í næsta "microcycle" og ráði við þolanlegar þyngdir og geti forðast meiðsli þokkalega, því ekki lyftir maður mikið meiddur.
Svo verður aftur tekið þungt á því á mánudagsæfingu 25.des.


5 Comments:
Okkur vantar massaðan línumann í Gróttunni. Það er æfing á morgun kl. 17:30.
He he, ég verð farinn austur yfir jólin :) Það yrði samt... áhugavert... að mæta á æfingu með ykkur ;)
Jólakveðjur
sælir, þá er maður mættur á skerið. Maður er orðinn munaðarlaus, svona æfingalega séð. Veit ekki hvar gömlu æfingafélagarnir eru að æfa. Sumir eru hættir eða fært sig eitthvað. Ákvað að byrja aftur hjá Binnster. Gat bara æft með 80 kg max td í bekknum út í Thai, en núna er ég að fikra mig upp tók 120 x4 á fyrstu bekkæfingunni og á næstu æfingu tók ég 130 kg x3.....Stefni á 200 kg en ekki segja neinum strax, kveðja master gunz
Menn eru í einhverri biðstöðu með þetta. Ég færi mig t.d. ekki til Bóndans fyrr en allt er orðið tilbúið í stöðinni.
Ég heyrði að gym80 ætti í erfiðri fæðingu þarna uppfrá. Hvernig er að æfa þar?
Annars var ég að panta mér brók og bol, leik mér sennilega í því þegar það kemur. Ég hálfvorkenni strákunum sem munu hjálpa mér með dótið, því þeir kunna ekki á það og ég verð sjálfsagt argandi á þá fram og til baka þar til þeir ná hlutunum rétt. Jæja... þeir læra þá allavega af því.
Hæ, gleymidi að skoða aðstöðuna í Hreyfingu þar sem mér skilst að þú æfir. Ég var orðinn svo örvæntingafullur að byrja að æfa. Á hvaða tímum ertu að æfa? Annars leist mér vel á gym80, eftir smá tíma. Gömlu andlitin eru að detta inn. Margt er þarna mun betra en á gamla staðnum, það fullyrði ég og staðsetningin er ekki svo slæm fyrir þá sem búa t.d í úthverfum, eins og Mosfellsveit og Grafarvogi. Gym-mið liggur alveg við Vesturlandsveg og því stutt heim, ótrúlegt en satt. Hins vegar er skrítið að vera að æfa á 2. hæð. útsýnið er gott, sb Esjan, Mosfellið osf, en hins vegar veit ég ekki hvernig er að dedda ´2. hæð. Td ef Benni kæmi þarna til að repsa 400 kg. Veit ekki það mikið um burðarþolsfræði?! Annars held ég að það sé ekkert grín að reka lyftingastöð í dag. Óska þessum strákum alls hins besta. Ég keyrði fram hjá Bóndagymminu í vikunni og sá að það eru nokkrir dagar eða vikur í opnum. Dreif mig þá upp á Viðarhöfða...
Skrifa ummæli
<< Home