fimmtudagur, nóvember 12, 2009

HM WPF 2009, Las Vegas

Ég keppti á fimmtudeginum í Las Vegas. Frá kl.00-9:30 að íslenskum tíma á föstudegi.

Ég var ekkert sérlega vel stemmdur, var með ónot á milli herðablaðanna og hálfómögulegur allur einhvern veginn. En ég ákvað að negla þetta bara samkvæmt plani. Vissi að byrjunarþyngdirnar væru eitthvað sem ég ætti að geta tekið sofandi.

Hnébeygja:
Upphitun
Var í traustu Metal King v-type squatter no.52
20kg x 5 x 10
60kg x 4 x 10
80kg x 3
100kg x 1 (+belti)
120kg x 1
140kg x 1 (+hnévafningar)
160kg x 1 (+hálf brók)
180kg x 1 (+brók)
200kg x 1

1.lyfta - 220kg skíííítlétt
2.lyfta - 237.5kg fílaði það þungt en það flaug alveg upp. 2.5kg bæting á móti í höfn.
3.lyfta - 250kg fílaði það klettþungt og hélt ég myndi ekki hafa það, þannig að ég klippti á dýptina. Fílaði það hrikalega þungt á uppleiðinni, en fór með það alveg sjálfur. Furðaði mig mikið á því að lyfta því, en sá svo eftirá að þetta var skítlétt upp. Rautt fyrir dýpt. Ekkert annað en mental barrier. Stefnt að því að þetta verði byrjunarvigt á næsta móti.

Bekkpressa
Fór í nýjan SuperKatana slopp nr.48 sem Flosi á og ég hafði mátað kvöldinu áður. Fílaði hann mjög vel.

Upphitun
20kg x 5 x 10
60kg x 3 x 5
80kg x 3
100kg x 1
115kg x 1
Þrefaldur 140kg x 1 í slopp
Alla leið niður með 160kg í slopp

Fyrsta lyfta: 170kg mjög örugg
Önnur lyfta: 182.5kg fór hægt upp, en ég fann að það var eitthvað smá inni enn. Persónulegt met um 10kg á móti.
Þriðja lyfta: 187.5kg fór löturhægt upp, sennilega ekki mikil innistæða fyrir meiri vigtum. Góður toppur!

Réttstöðulyfta
Upphitun
60kg x 2 x 5
100kg x 3
140kg x 1 í deddbrók
160kg x 1
180kg x 1

Fyrsta lyfta: 200kg skítlétt
Önnur lyfta: 225kg, þurfti aðeins að hafa fyrir henni, persónuleg bæting um 5kg á móti. Totalbæting um 27.5kg í höfn.
Þriðja lyfta: 230kg, var ekki nógu hungraður, þannig að þetta fór ekki upp.

Allt í allt engin ástæða fyrir svekkelsi, en ég er sáttur við að hafa enn hungur í bætingar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home