Héðinsmótið
Jæja...
Í Mexíkó tók ég eina æfingu 18.júní, bara bekk...
Bekkur: 20kg x 10, 60kg x 10, 80kg x 5, 100kg x 1
Allt mjög blítt og létt og án áreynslu.
Miðvikudaginn fyrir mót, 4.júlí, var fyrsti séns fyrir mig að ná æfingu eftir að ég kom heim.
Bekkur: 20kg x 7, 30kg x 2 x 5, 50kg x 5, 70kg x 3, 80kg x 3, 90kg x 1, 100kg x 1
-í slopp: 110kg x 1, 120kg x 1
Aftur allt saman mjög létt, enda vitlaust að keyra sig út svona stuttu fyrir mót, þurfti bara rétt aðeins að fíla sloppinn.
Mótið
Eftir skrautlega ferð vigtaðist ég 94,8kg. Sirka 3kg léttari en á byrjendamótinu. Svo komst ég að því að Grjóni miðnæturdeddari var kominn upp í flokkinn úr 90kg flokknum, þannig að við vorum orðnir fjórir. Ég byrjaði að hita upp og vonaði það besta.
Bekkur: 20kg x 2 x 10, 40kg x 8, 60kg x 5, 80kg x 3, 90kg x 1, 100kg x 1
-í slopp: 110kg
Rétt áður en ég byrjaði komst ég að því að Grjóni hafði lækkað byrjunarþyngd úr 120kg í 130kg þannig að kannski var kominn séns á að vinna hann, en því miður var ég þyngri og hafði lægra rásnúmer, svo að ég þurfti að bíða með breytingar fram að þriðju lyftu. Hinir tveir, Svabbi og Einar voru utan seilingar svo ég spáði ekki neitt í þeim.
1: 120kg tvö hvít, eitt rautt (frá Kára!!!) Rassinn var víst tæpur, en alveg á mörkunum þannig að ég fékk þessa viðvörun. Mjög létt lyfta, þannig að ég meldaði 130kg. Grjóni lyfti líka skítlétt og meldaði 130kg.
2: 130kg þrjú hvít! Brandaralétt, þrátt fyrir að dansa aðeins um áður en ég komst í byrjunarstöðu. Ég ákvað strax að melda persónulega bætingu, 137,5kg, og sjá til með að breyta eftir því hvað Grjóni færi í. Hann þeytti upp 130kg og meldaði 140kg. Ég ákvað að taka bara sénsinn og melda 142,5kg, 130kg var svo létt.
3: 142,5kg þrjú hvít! 7,5kg persónuleg bæting eftir mánuð í Mexíkó!!! Lygilegt! Þvílík hamingja! Þetta var meira að segja án teljanlegs streðs! Greinilega nóg að plata hugann eftir að hafa lesið að 3Board press ætti að vera 90% af keppnisbekk... ekki það að ég fari að taka 165kg alveg strax, en ég finn á mér að þetta fari að þokast upp.
Jæja, ég varð allavega ekki í síðasta sæti og var bara mjög sáttur við þetta allt saman.
p.s. umgjörðin á þessu móti var virkilega flott og allt til fyrirmyndar, verst bara hvað það voru fáir áhorfendur.

2 Comments:
Til hamingju með stórkostlega bætingu, Fjölnir.
Til hamingju með bætinguna, frábær bæting, þetta er andin. ætlaði að vera með en var að vinna alla helgina en ég fer alveg að taka 200 í slopp kannski næsta föstudag þann 13.júlí er það ekki föstudagur 13 er það ekki óheilladagur. láttu sjá þig í orkuverinu kær kveðja spjóti
Skrifa ummæli
<< Home