laugardagur, maí 31, 2008

Lower body

Overhead beygja: 20kg x 10, 30kg x 10, 40kg x 5, 50kg x 5
Beygjur: 60kg x 10, 80kg x 5, 100kg x 5
Vafin beygja: 120kg x 5, 130kg x 5, 140kg x 5, 150kg x 3
Dedd: 70kg x 5, 110kg x 5, 130kg x 1, 150kg x 1, 170kg x 0, 0, 0, 150kg x 2, 150kg x 2 x 3, 130kg x 3 x 3

Ég stóðst ekki mátið, ég bara varð að fara á æfingu. Það var samt enginn andi í mér, og beygjurnar merkilega góðar miðað við það. Deddið var hins vegar herfilegt. Ég komst engan veginn í fíling og ferlið var eitthvað óeðlilegt þannig að ég endaði á því að hálfpartinn stiffa þetta allt saman.
Það er greinilegt að ég þarf að leggja meiri áherslu á deddið í sumar til að skila góðum tölum í haust.

laugardagur, maí 24, 2008

Efri

Hallandi bekkpressa: 20kg x 10, 30kg x 10, 40kg x 10, 50kg x 10, 60kg x 5, 70kg x 5, 80kg x 5, 90kg x 1
A1 Db row: 20kg x 8, 32,5kg x 8, 40kg x 2 x 8
A2 Overhead tricep extension: 22,5 x 10, 30 x 10, 30 x 7, 22,5 x 10

Ánægður með hallandi bekkinn, hef aldrei tekið hann að ráði og fór með Tobba og Hirti í hann. Ágætt að vita að maður sé að verða sterkari í þessum draslæfingum án þess að æfa þær beint.

fimmtudagur, maí 22, 2008

Smá æfing í verkefnisgeðveikinni!

Hnébeygja: 20kg x 10, 50kg x 10, 70kg x 10, 100kg x 10, 120kg x 5
Langt síðan lóðin hafa verið svona ægilega létt á bakinu.
Bekkpressa: 20kg x 15, 40kg x 10, 60kg x 10, 80kg x 5

Rétt liðkaði allt draslið og fór svo.

miðvikudagur, maí 14, 2008

Fætur

Hnébeygja: 20kg x 10, 40kg x 10, 50kg x 10, 70kg x 5, 110kg x 5
Hækkað dedd: 40kg x 2 x 5, 70kg x 2 x 5
Mætti nett veikur á æfingu og gerði eitthvað minimal. Ég svitnaði bara við það að vera til, þannig að ég ákvað að ganga ekki alveg frá mér, bara rétt ná að hitna og hreyfa allt draslið til. En ég er kominn á sýklalyf, þannig að þetta hlýtur að skána fljótt.

mánudagur, maí 12, 2008

Bekkæfing

Db Floor press: 15kg x 10, 20kg x 10, 25kg x 10, 30kg x 10, 35kg x 5, 40kg x 5, 45kg x 5, 40kg x 5
45°Hallandi Db bekkur: 30kg x 2 x 8
Sitjandi róður með kaðli: 30 x 2 x 8
Face pulls: 25 x 3 x 15

Þetta var ágætis dagur, mér er sennilega óhætt að fara aftur á bekkinn á næstu æfingu eftir þetta endurhæfingapump.

laugardagur, maí 10, 2008

Þung beygja

Það var búið að vera á planinu að kíkja í brók og sjá hvað færi upp síðan ég tók 160kg bara vafinn í beygju. Ég lét slag standa í dag.

Hnébeygja: 20kg x 2 x 10, 40kg x 10, 60kg x 5, 80kg x 5, 100kg x 5, 120kg x 5, 140kg x 1
Hnébeygja, vafinn, hlýrar niðri: 160kg x 1, langt frá dýpt
Hnébeygja, vafinn, hlýrar uppi: 180kg x 1, 200kg x 1, 200kg x 1, 212.5kg x 1 allar of grunnar, en svo náði ég loks dýpt með 212.5kg! Persónulegt met í höfn! Langt síðan ég hef tekið þyngd á við þessa, rúmlega tvö ár. Þetta veit á gott.

mánudagur, maí 05, 2008

Beygja

Á föstudaginn tók ég eitthvað búkkadrasl sem var ekki í frásögur færandi, en í dag tók ég:

Hnébeygja: 20kg x 2 x 10, 60kg x 10, 80kg x 10, 100kg x 5, 120kg x 5 x 5
Good mornings: 20kg x 10, 50kg x 3 x 10